WHO, Alþjóða heilbrigðisstofnunin, hefur krafist óhindraðs aðgangs að Douma í Sýrlandi til þess að kanna sannleiksgildi frétta samstarfsaðila sinna um að 500 manns hafi orðið fyrir eiturefnaárás þar. Alls létust 70 manns í kjölfar árásarinnar, samkvæmt upplýsingum WHO.
Sýrlensk stjórnvöld segjast ekki standa á bakvið neina eiturefnaárás.
Bandaríkin hafa hótað að svara árásinni í Douma „kröftuglega“ en Rússar segja ásakanirnar aðeins vera átyllu til þess að ráðast gegn Sýrlandsstjórn.