Þetta er samningur sem gerður var á milli maoría sem teljast frumbyggjar Nýja-Sjálands og fulltrúa ensku krúnunnar árið 1840. Áratugum saman hefur þessi samningur verið hundsaður þar sem litið er svo á að hann veiti maoríum ekki neinn sérstakan rétt.
Nú er aftur rætt um Waitangi samninginn og frumbyggjarétt maoría sökum myndatöku konu að nafni Jaylene Cook. Hún er Ný-Sjálenskur ríkisborgari og er að sögn gefin fyrir ögrandi framkomu. Hún kleiff fjallið Taranaki og lét mynda sig í bak og fyrir á Evuklæðunum einum fata.
Talsmaður ættbálks maoría sem býr við rætur fjallsins segir fjallið heilagt og svona lagað sé einfaldlega mjög óviðeigandi.