Björgólfur Guðmundsson fyrrverandi aðaleigandi og stjórnarformaður Landsbanka Íslands og Gunnar Thoroddsen fyrrverandi framkvæmdastjóri sama banka í Lúxemborg hafa báðir verið sýknaðir í máli sem var höfðað gegn þeim í Frakklandi. Um þetta var frétt í hádeginu á RÚV.
Þeir voru ákærðir fyrir að hafa blekkt ellilífeyrisþega sem áttu verðmætar fasteignir sem lagðar voru að veði fyrir háum lánum frá bankanum. Hluti lánanna var greiddur út af bankanum en afganginn ætlað bankinn að fjárfesta í umboði lántaka.
Eftir hrun tók slitastjórn bankans til við að innheimta lánin sem ollum mörgum lántökum umtalsverðum fjárhagslegum erfiðleikum.
Í dómsuppkvaðningu dómstólsins í Frakklandi segir að það fái ekki staðist að lánþegar hafi verið fórnarlömb svika þegar þeir af fúsum og frjálsum vilja veðsettu fasteingir sínar hjá bankanum í Lúxemborg.
Nánar www.ruv.is