Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja, sagði af sér sem formaður Landssambands íslenskra verslunarmanna í gær. Hann segir að þrátt fyrir góðan gang í viðræðunum hafi VR ekki viljað reyna til þrautar að ná samkomulagi. Viðskiptablaðið greinir frá.
Í samtali við Viðskiptablaðið segir Guðbrandur að VR hafi frekar horft til samstöðu með öðrum verkalýðsfélögum, þ.e. Eflingu, Verkalýðsfélagi Akraness og Verkalýðs- og sjómannafélagi Grindavíkur. „Ég álít að þetta bandalag fjórmenninganna sé það sterkt að það sé á þessum tímapunkti ekki hægt að rjúfa það. Ég tel að það sem var á borðinu í síðustu viku sé leið til lausnar. Það að vilja ekki fara þá leið sýnir að menn eru tilbúnir að beita öðrum vinnubrögðum til að ná því fram sem þeir telja ásættanlegt.“
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, var í kjölfar afsagnar Guðbrands umsvifalaust kjörinn formaður LÍV í hans stað.
„Ég er að upplifa eitthvað nýtt þessa dagana. Ég hef ekki vanist því að landssambandið og stærsta félagið fari sitt í hvora áttina í samningsgerð,“ bætir Guðbrandur við.