"Það ræðst á fyrsta fundi okkar strax eftir helgi með viðsemjendum hjá Ríkissáttasemjara hvort einhver grundvöllur sé til að halda viðræðunum áfram. Ef ekki munum við strax í næstu viku hefja undirbúning verkfalla," sagði Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, í samtali við Pál Magnússon í þættinum Þjóðbraut á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld.
VR er stærsta verkalýðsfélag landsins og er í samfloti við Landssamtök verslunarfólks í yfirstandandi kjarasamningum. Um 30 þúsund launþegar tilheyra þessum félögum. Það hvílir því mikill þungi í orðum formanns VR á Þjóðbraut í gærkvöld þar sem látið er að því liggja að verkfallsaðgerðir séu í farvatninu.
Hætt er við að samfélagið lamist fari svo að VR-félagar fari í verkfall á sama tíma og 10 þúsund félagar í Starfsgreinasambandinu leggja niður störf, sem allt stefnir í á næstu dögum, ásamt opinberum starfsmönnum innan BHM sem eru í ótímabundnu verkfalli.