Það verður ekki annað sagt en að Ritstjóraþáttur vikunnar skjálfi lítið eitt enda skiptast þar á skoðunum um fréttamál líðandi stundar, þau Stefán Einar Stefánsson, sem stýrir ViðskiptaMogga og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir, fréttastjóri Fréttatímans, en þáttinn má nú sjá hér á vef stöðvarinnar.
Þau eru þó altént sammála um að næsta óvænt hallarbyltingin hjá VR muni hafa miklar afleiðingar, ekki aðeins fyrir innra starf þessa fjölmennasta stéttarfélags landsins heldur og fyrir Alþýðusamband Íslands, enda búið að setja sjálfa erfðaprinsessuna á þeim bænum af - og róttækur arftakinn virðist til alls líkur, gæti jafnvel heimtað úrsögn VR ur ASÍ sem yrði stóráfall fyrir sambandið. Stefán Einar segir að það hljóti nú að fara um Gylfa Arnbjörnsson, forseta ASÍ, enda fráfarandi formaður VR, Ólafía B. Rafnsdóttir honum mjög handgengin, gerólíkt arftakanum Ragnari Þór Ingólfssyni sem vilji sem minnst af Alþýðusambandinu vita, en Stefán Einar talar hér raunar af nokkurri reynsla, féll sjálfur fyrir Ólafíu sem formaður VR fyrir nokkrum árum.
Afléttun gjaldeyrishaftanna verður greind í þaula í þættinum og þar byrjar að neista á milli Stefáns og Þóru, enda spurning hvort stjórnvöld hafi verið of lin við aflandskrónueigendur og hvernig krónunni muni reiða af í því ótrygga umhverfi sem blasir við mörgum helstu fyrirtækjum landsins sem fá tekjur sínar í erlendri mynt en greiða út launin í innlendri mynt í einstaklega óvilhöllu vaxtaumhverfi.
Svo takast þau á um fjölmiðla í almannaþágu og aðra þá sem ef til vill sinna fremur sérhagsmunum og hvort blöð og ljósvakar eigi frmur að leita til auðmanna eða almennings til að halda úti burðugri og fagmannlegri ritstjórn - og það má sjá hvar þau reka hornin hvort í annað undir lok þáttarins.
Ritstjórarnir eru frumsýndir öll þriðjudagskvöld klukkan 21:00.