Vr, efling og vlfa í samstarf

VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness (VLFA) hafa tekið ákvörðun um að fara fram saman í kjaraviðræðum við atvinnurekendur. Munu þau í sameiningu vísa kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara og býst Vilhjálmur Birgisson, formaður VLFA, við því að það gerist í dag. Frá þessu er greint á Mbl.is.

Ákvörðunin um samstarf var tekin í kjölfar þess að Efling og VLFA ákváðu að afturkalla samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu (SGS). Afturköllunin á samningsumboðinu kom í kjölfar formannafundar SGS í síðustu viku, þar sem meirihluti lagðist gegn því að vísa kjaradeilunni til ríkissáttasemjara.

Í annarri frétt Mbl.is um málið segist Vilhjálmur búast við því að fleiri félög innan SGS gangi inn í þetta samstarf, þó hann gæti ekki gefið upp hvaða félög væri um að ræða. Í gær hafi verið rætt við for­menn eða vara­for­menn all­flestra fé­laga inn­an SGS og sögðu þeir flest­ir að samn­ings­um­boð þeirra stétt­ar­fé­laga yrði áfram hjá sam­band­inu.

Þá kemur fram að ólíklegt sé að eitt­hvað ger­ist í þessum efn­um yfir hátíðarn­ar þar sem ýmis félög inn­an SGS séu að skoða stöðuna. Þau telji rétt að gefa viðræðunum sem nú eru í gangi við at­vinnu­rek­end­ur tíma að minnsta kosti fram í janú­ar. Skili þær ekki ár­angri þurfi að taka stöðuna og meta hvort vísa eigi kjara­deil­unni til rík­is­sátta­semj­ara líkt og VR, Efling og VLFA hyggist gera núna.