VR auglýsir eftir húsnæði til kaups sem félagið vill leigja ódýrt út til félagsmanna sinni.
Auglýsingin er svona:
Leigufélag VR leitar að fjölbýlishúsi til kaups á höfuðborgarsvæðinu til útleigu til félagsmanna VR. Óskað er eftir húsi með að lágmarki 20 íbúðum. Kostur er ef húsið býður upp á misstórar íbúðir. Húsið þarf að vera í mjög góðu ásigkomulagi, en má einnig vera óbyggt eða í byggingu
Ekki fylgir með hvers vegna 20 íbúðir þurfa en ekki fleiri því nokkuð víst er að eftirspurnin mun verða gríðarlega hjá félagsmönnum í þessu stærsta stéttarfélagi landsins.
En eins og Viðskiptablaðið hefur fjallað um hefur Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR viðrað hugmyndir um að nota sjóði gamla verslunarmannafélagsins til að leigja félagsmönnum ódýrt húsnæði í borginni. Félagið samþykkti í lok febrúar stofnun leigufélags, en í yfirlýsingu í kjölfar stofnunarinnar er bent á að uppsöfnuð þörf fyrir nýjar íbúðir á íslenskum markaði séu um 6 þúsund íbúðir meðan árleg viðbótarþörf sé um 2.200 íbúðir.