Rekstrartekjur Blá lónsins árið 2016 voru 77,4 milljónir evra eða 10,3 milljarðar íslenskra króna. Grímur Sæmundsen forstjóri Bláa lónsins segir að áhersla félagsins á fjárfestingar í gæðum og upplifun gesta Bláa lónsins hafa borið góðan árangur sem sést vel af rekstri félagsins árið 2016.
Öflug og virk aðgangsstýring lék lykilkhlutverk í því efni. Unnið er að áframhaldandi uppbyggingu sem mun felast í stækkun á upplifunarsvæði Bláa lónsins og nýju hágæða hóteli þar sem áherslu verður á upplifun gesta og mikil þjónustugæði.
Um 600 mannns vinna hjá Blá lóninu og mun þeim fjölga samfara auknum umsvifum.
Í tilkynningu frá Bláa lóninu segir að rekstrartekjur Bláa lónsins í fyrra námu 77,2 milljónum evra eða 10,3 milljörðum króna. Rekstragjöld Bláa lónsins voru tæpar 49 milljónir evra árið 2016 samanborið við 33 milljónir evra árið 2015. Arðsemi eigin fjár árið 2016 var 43%. Viðskiptablaðið segir frá þessu.
rtá
Nánar www.vb.is