Lyf eru ein stærsta útflutningsgrein þjóðarinnar sem ekki byggist á náttúruauðlindum. Þetta er meðal þess sem Daði Freyr Ingólfsson kemst að í nýrri Mastersritgerð sinni í lyfjafræði við Háskóla Íslands. Daði Freyr segir á Þjóðbraut í kvöld að miklir möguleikar hafi ávallt verið hér á landi til að framleiða lyf vegna hagstæðrar einkaleyfalöggjafar hér á landi. Hún verði til þess að hér sé hægt að koma á markað lyfjum fyrr en ella.
Tímamót eru að verða á þessu sviði, segir Daði Freyr en framleiðsludeild Actavis er að yfirgefa landið en í staðinn reisir annað lyfjafyrirtæki, Alvotech hér verksmiðju fyrir hátæknilyfjaframleiðslu sem er annars konar en Actavis gerði. Alvotech mun krefjast mikils mannauðs menntaðan í margvíslegum raungreinum og utan þeirra líka.