Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hafa sent Nýsjálendingum samúðarkveðjur á Twitter eftir hryðjuverkaárás á tvær moskur í Christchurch í dag. 49 eru látnir og 48 eru særðir eftir árásina, sem var framin vegna múslimaandúðar.
„Ég er Í áfalli og harmi slegin vegna glórulauss ofbeldis í Christchurch. Kæra Jacinda Ardern, ég sendi þér mínar dýpstu samúðarkveðjur og allt ljós í heiminum frá íslensku þjóðinni,” skrifaði Katrín á Twitter aðgangi sínum.
„Við erum afar sorgmædd vegna hinnar hræðilegu hryðjuverkaárás í Christchurch. Hugur okkar er hjá fjölskyldum fórnarlambanna og nýsjálensku þjóðinni,“ skrifaði Guðlaugur Þór á Twitter aðgangi sínum.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu eru Íslendingar í Christchurch hvattir til að hafa samband við borgaraþjónustu ráðuneytisins ef þeir þurfa á aðstoð að halda, ellegar láta aðstandendur sína vita eða gera vart við sig á samfélagsmiðlum.
Árásin vegna andúðar í garð múslima
DV.is greinir frá því að Brenton Tarrant, ástralskur maður á þrítugsaldri, hafi sent beint út á Facebook frá því þegar hann skaut fólk til bana í annarri moskunni. Tarrant segist hafa verið í sambandi við Anders Behring Breivik og hafi notið stuðnings stuðningsmanna Breivik við undirbúning hryðjuverkanna. Tarrant birti eins og Breivik ítarlega stefnuyfirlýsingu, 73 blaðsíður að lengd, áður en hann hóf árásina.
Í stefnuyfirlýsingunni segir Tarrant að hryðjuverkin séu hefnd fyrir hryðjuverk í Evrópu. Er hann bersýnilega undir áhrifum hægriöfgasinnaðra þjóðernissinna sem eru andsnúnir múslimum. Hann lýsir m.a. yfir stuðningi við Donald Trump og skrifar um nauðganir pakistanskra karla á hvítum konum í Bretlandi.