Vorverkin hafin af gleði og krafti

Mikil veðurblíða hefur verið um mestallt land síðustu daga. Gróður er víða kominn betur af stað en oft á þessum árstíma. Vorhugur er í landsmönnum nú þegar tvær vikur eru í sumardaginn fyrsta.

Sum verk boða vorkomu fremur en önnur, t.d. runnasnyrtingar. Hann brosti enda breitt starfsmaðurinn sem af samviskusemi sá um að snyrta hekkið í kringum Akureyrarkirkju í blíðviðrinu í gær þegar ljósmyndari Hringbrautar átti leið um.

Í sólsskinsskapi í sólinni. Þannig erum við núna.