Vörusvik með norskan þorsk í kína

Norskur þorskur er keyptur til Kína þar sem hann er sprautaður með vatni, fosfati og fleiri efnum áður en hann er fluttur aftur til Evrópu. Sjónvarpsstöðin France 5 afhjúpaði þessi vörusvik í heimildamynd um helgina. Fiskifréttir greina frá.

Í heimildamyndinni eru sýnd myndskeið sem tekin voru með falinni myndavél. Á þeim sést vatni sprautað með vélum í fiska á færiböndum, auk þess sem talað er við fulltrúa Kína við sýningarbás á Seafood Expo sjávarútvegssýningunni í Brussel. Þar viðurkenna fulltrúarnir að þeir kaupi ódýran þorsk og sprauti hann með vatni svo hann verði stærri og greina auk þess frá því að fosfati og pentakalíumtrífosfati ásamt öðrum efnum sé sprautað í fiskinn svo hann verði hvítari.