Vörur eru oft teknar úr umferð

Í fyrsta þætti Neytendavaktarinnar á Hringbraut sem frumsýndur var síðastliðið þriðjudagskvöld kom fram að matvörur í verslunum eru mun oftar fjarlægðar af markaði en almenningur kann að halda. Ástæðan er einkum sú að vörurnar reynast innihalda óæskileg aukefni, sem svo eru nefnd til aðgreiningar frá aukaefnum. Að sögn Katrínar Guðjónsdóttur, sérfræðings hjá Matvælastofnun, sem var einn gesta Rakelar Garðarsdóttur umsjónarmanns í þættinum, eru aukefni og aukaefni ekki það sama, þau fyrrnefndu eru efni sem aukið er í matvæli til þess að hafa áhrif á geymsluþol, lit, lykt, bragð eða aðra eiginleika matvæla, en áður en þau eru leyfð í matvælum þurfa þau að ganga í gegnum ítarlegar rannsóknir.


Í þættinum kom fram að það er á ábyrgð framleiðanda og innflutningsaðila matvöru að innihaldsmerkingar fari að settum reglum. Vel er fylgst með því að svo sé, en að sögn Katrínar koma reglulega upp tilvik þar sem þessum reglum er ekki fylgt eða farið er á svig við þær.


Þá kom fram í þættinum að það er sitthvað safi og drykkur. Safi má sú vara aðeins heita sem inniheldur ekki viðbættan sykur - og ef svo er, skal hún heita drykkur. Neytendavakt Rakelar Garðarsdóttur er sem fyrr segir frumsýndur á þriðjudagskvöldum á Hringbraut klukkan 21.30.