Vörukarfan hækkaði í átta verslunum af tíu

Auður Alfa Ólafsdóttir, verkefnastjóri verðlagseftirlits Alþýðusambands Íslands, mætir til Lindu Blöndal í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut í kvöld. Þar ræðir hún nýja verðlagskönnun sambandsins.

Verðlagskönnunin náði frá fyrstu vikunni í nóvember 2018 til annarrar vikunnar í maí síðastliðinn. Samkvæmt könnuninni hækkaði vörukarfan í átta verslunum af 10. Mest hækkaði vörukarfan í 10-11, um 5,5 prósent, en minnst í Bónus og Kjörbúðinni, um 0,3 prósent.

Á sama tímabili lækkaði vörukarfan í Samkaup Strax um 1,2 prósent og um 0,6 prósent í Krambúðinni. Heilt á litið hækkaði verð á brauð- og kornvörum, sykri, súkkulaði og sælgæti og drykkjarvörum mest á tímabilinu og má sjá hækkanir í þessum vöruflokkum í nær öllum verslunum.

\"\"

\"\"

*Super 1 opnaði um miðjan febrúar

Á tímabilinu sem verðlagskönnun ASÍ náði yfir hækkaði heildar vísitala neysluverðs um 0,11 prósent. Á sama tíma hækkaði vísitala matvöru- og drykkjarverðs um 0,7 prósent og telur Auður Alfa að samþykkt kjarasamninga á tímabilinu hafi þar haft mikið að segja.

Nánar er rætt við Auði Ölfu um verðlagskönnunina í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.