Vörujöfnuður minnkar á milli ára

Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á fyrsta ársfjórðungi 2018, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 4,8 milljarða króna en hann var jákvæður um 6,4 milljarða á sama tíma árið 2017, á gengi hvors árs.

Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var óhagstæður um 27,8 milljarða króna en þjónustujöfnuður var hagstæður um 32,6 milljarða að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands í dag .

Heildarútflutningstekjur vegna vöru- og þjónustuviðskipta námu rúmum 272,1 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam tæpum 267,4 milljörðum króna.