Voru til rannsóknar án vitneskju

„Við vorum kærð til sérstaks saksóknara af Seðlabankanum á haustmánuðum 2011 og við vissum ekki um það að við værum þá til rannsóknar. Síðan var þessi kæra dregin til baka einhverju síðar en það breytti því ekki að Seðlabankinn var sífellt að afla upplýsinga, afla gagna og óska eftir yfirliti færslna. Þetta gekk í nokkur ár og síðan gerðist það 3-4 árum seinna að við höfðum spurnir af því að við höfðum verið til rannsóknar,“ segir Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.

Sigurgeir Brynjar er gestur Björns Jóns Bragasonar í frétta- og umræðuþættinum 21 í kvöld.

Gjaldeyriseftirlit Seðlabankans hefur verið mikið til umfjöllunar undanfarin ár vegna rannsókna bankans á fyrirtækjum, sérstaklega Samherja hf. Þau mál voru öll felld niður en fleiri fyrirtæki voru rannsökuð.  Þeirra á meðal var Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum.

Eftir að hafa heyrt af því að Vinnslustöðin hefði verið til rannsóknar leitaði fyrirtækið staðfestingar á því. „Við skrifuðum þá bréf og óskuðum eftir upplýsingum um hvort svo hefði verið og þá fengum við staðfestingu á því að við hefðum verið til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara og ég og fyrirtækið haft stöðu grunaðs án vitneskju. Við höfðum allan þann tíma verið að láta Seðlabankann hafa allar þær upplýsingar sem þeir vildu, allar færslur og öll yfirlit. Hvort sem við hefðum vitað af því að við hefðum verið kærð eða ekki hefði engu breytt. Við hefðum látið Seðlabankann fá allar þær upplýsingar, allar þær færslur sem hann vildi,“ segir Sigurgeir Brynjar.

Að hans sögn var niðurstaða þessarar ítarlegu rannsóknar sú að engin færsla og ekkert í viðskiptum Vinnslustöðvarinnar við erlenda viðskiptavini hafi falið í sér nokkra misnotkun og því hafi engin ástæða verið til að kæra eða ákæra.

Telur gagnaöflunina tengjast Samherjamálinu

Sigurgeir Brynjar telur það alveg ljóst að gagnaöflun hjá Vinnslustöðinni hafi beinlínis tengst rannsókninni á Samherja vegna meintrar undirverðlagningar Samherja á sölu sjávarafurða til dótturfélags síns á erlendum markaði, þar sem Seðlabankinn hafi t.a.m. óskað eftir upplýsingum um söluverð Vinnslustöðvarinnar á karfa á erlendum markaði.

Nánar er rætt við Sigurgeir Brynjar í 21 í kvöld. Þátturinn hefst klukkan 21:00.