Veðurstofan segir að skilunum fylgi suðlægar áttir en samt ekki hvassar og lægir ágætlega á milli. Og þokkalega milt veður verður fram eftir vikunni þótt spár geri ráð fyrir að frysti inn til landsins að næturlagi. Undir helgi gera flestar spár ráð fyrir að frysti víðast hvar með ofankomu fyrir norðan en skúrum eða éljum syðra.
Vorjafndægur verða í dag klukkan 16:15. Á norðurhvelinu hefst vor en haust á suðurhvelinu þegar sólin færist norður yfir miðbaug himins, segir á Stjörnufræðivefnum. Um þetta leyti er dagurinn um það bil jafnlangur nóttinni hvar sem er á jörðinni, og af því er nafnið dregið. Jafndægur eru einnig einu tveir dagar ársins þegar sólin er beint fyrir ofan miðbaug jarðar, segir ennfremur á Stjörnufræðivefnum.
Á sumarsólstöðum verður sólin svo lengst frá miðbaug himins og byrjar eftir það að lækka aftur á lofti. Það gerist 21. júní í sumar.