\"Vorið er komið og grundirnar...\"
Með þessari tilvitnun í lagið góða birtir Gaukur Hjartarson á Húsavík á facebook-síðu sinni myndina sem fylgir fréttinni. Hún var tekin í gærkvöld.
Á þræði Gauks spinnast umræðu um mun norðurs og suðurs þessa dagana í veðráttu og birtir einn fb-vina Gauks mynd úr Eyjum þar sem sannarlega er sumarlegt að litast miðað við Húsavík.
Með annarri \"vetrarmynd\" sem tekin var í gær á Húsavík segir Pálmi Aðalbjörn Hreinsson nokkuð kaldhæðinn í stíl við veðrið: \"Húsavík 6. maí. Var að klára hrygginn og fer að opna gjafirnar.\"
Góðu fréttirnar fyrir Norðlendinga eru að áttir eru að snúast. Veður fer hlýnandi í dag um allt land og verður allt að 14 stiga hiti sunnanlands. Á Norðurlandi hlýnar mjög á morgun skv. Veðurstofunni og munu vestlægar og suðvestlægar áttir blása hlýju lofti yfir landsmenn alla og hrekja burt norðlenskan kuldabola.