Vopnaflutningarnir brot á sáttmála

Íslensk stjórnvöld höfnuðu í gær umsókn flugfélagsins Air Atlanta um hergagnaflutninga til Sádi Arabíu. Stjórnvöld hafa hingað til heimilað flutninga sem þessa, sem samkvæmt úttekt fréttaþáttarins Kveik á RÚV í gær virðast oft fara í bága við íslensk lög og vopnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem Ísland er aðili að.

Að því er kom fram í þættinum banna íslensk lög og alþjóðasáttmálar að vopn séu flutt til svæða þar sem þau eru notuð gegn almenningi eða í stríðsglæpum. Þrátt fyrir þetta hafi íslensk yfirvöld heimilað flutninga vopna til Sádi-Arabíu, þaðan sem þau berast til stríðssvæða Jemens og Sýrlands.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði m.a. við RÚV eftir að hafa séð innslagið úr Kveik, að það líti út fyrir að andi vopnasáttmálans hafi ekki náð inn í framkvæmdina hér.

Sigurður Ingi Jóhannsson, sem ber sem ráðherra samgöngumála ábyrgð á veitingu vopnaflutningaleyfa, sagði við RÚV að ekkert eftirlit væri á áfangastöðum flutninganna. \"Við erum augljóslega hvorki með her né leyniþjónustu til þess að fylgjast með neinum slíkum þáttum.“