Vopnaðir sérsveitarmenn handsömuðu ölvaðan mann á Austurvelli í dag eftir að lögreglu var tilkynnt um mann vopnaðan hnífi. Fréttablaðið greinir frá þessu.
Var sérsveitin fyrst á vettvang en skömmu síðar komu tveir einkennisklæddir lögreglumenn einnig á vettvang.
Lögreglumaður sem Fréttablaðið ræddi við á vettvangi sagði að um ómerkilegt vopn að ræða.
Maðurinn var við drykkju á Austurvelli í nokkrurra manna hópi þegar hann dró upp hnífinn en það var starfsfólk Reykjavíkurborgar sem var við garðyrkju á staðnum sem gerði lögreglu viðvart um manninn. Hann var handtekinn á staðnum og fluttur á brott í lögreglubíl.