Tveir menn, vopnaðir byssum, gerðu tilraun til vopnaðs ráns í útibúi Landsbankans við Borgartún eftir hádegi í dag.
Lögregla mun gefa út yfirlýsingu innan skamms en samkvæmt heimildum Hringbrautar meiddist enginn.
Samkvæmt Rúv er mikill viðbúnaður lögreglu við Landsbankann í Borgartúni. Útibúinu hefur verið lokað og starfsfólkinu boðin áfallahjálp. Börn voru í bankanum þegar glæpurinn átti sér stað.
Fyrstu heimildir Hringbrautar töldu að mennirnir hefðu notað haglabyssu til að ógna í ráninu en mbl.is segir að þeir hafi verið með skammbyssur.
Uppfært kl. 14:32: Samkvæmt Rúv komust mennirnir á brott með fjármuni eftir að hafa hótað gjaldkera. \"Þeir voru með trefla fyrir vitum sér og hrópuðu. „Þetta er bankarán.“ Þeir komust síðan undan á hlaupum í austurátt. Mannanna er nú leitað,\" segir í frétt Rúv.
Ennfremur segir fréttastofa Ríkisútvarpsins að talið sé að mennirnir hafi komist undan í hvítum sendibíl.