Vont að reka mann ef sýkna síðar

Logi Már Einarsson, oddviti Samfylkingarinnar á Akureyri, segir vont að reka mann vegna dóms ef hann verðir sýknaður síðar.

Þetta segir oddvitinn í svari við fyrirspurn Hringbrautar, en Logi Már er í fríi í útlöndum en hefur fylgst með fárviðrinu um traustsyfirlýsingu stjórnar AFE til framkvæmdastjóra eftir að framkvæmdastjórinn var dæmdur í 18 mánaða fangelsi í gær vegna Stímmálsins. Formaður stjórnar AFE, Unnar Jónsson, kemur úr rörðum Samfylkingarinnar á Akureyri.

„AFE er sjálfstætt félag og einu afskipti mín af þessu máli voru að ég hvatti formann stjórnar til að leita álits vandaðra sérfræðinga, sem lægi til grundvallar þegar dómur félli. Mér skilst að búið hafi verið að leita álits virtrar lögfræðistofu á sviði vinnuréttar. Þar kom víst fram að yrði dómi áfrýjað, væri það í raun í sömu stöðu og þegar beðið væri dóms héraðsdóms,“ segir Logi Már Einarsson í skriflegu svari við fyrirspurn Hringbrautar.

Hann bætir við: „Mér er sagt að almennt teljist dómur ekki endanlegur fyrr en annað hvort áfrýjunarfrestur rennur út eða dómur Hæstaréttar liggur fyrir. Það er vond staða að hafa rekið mann fyrir brot verði hann síðan sýknaður. Ég treysti stjórn AFE til þess að fara með þetta mál í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.“