Vonsviknir nemendur Háskóla Íslands

Nemendur á öðru ári í félagsfræði í Háskóla Íslands hafa sent rektor skólans, Jóni Atla Benediktssyni, opið bréf sem birtist á Vísi í morgun.

Í bréfinu skín óánægja nemenda með fyrirhuguð staðpróf í desember í gegn. Þau segjast sár, reið og vonsvikin yfir ákvörðun stjórnenda.

„Árið er 2021 og að Háskóli Íslands, ríkisháskólinn okkar, vilji ekki leyfa nemendum að nýta þá tækni sem er í boði og taka prófin heima er sorglegt. Það er kominn tími til þess að HÍ sameinist okkur hinum sem erum komin í 21. öldina,“ segir meðal annars í bréfinu.

Nemendurnir segjast ekki skila afhverju skólinn myndi auka streitu og kvíða nemendur með þessari ákvörðum um staðpróf. Þá skilji þau ekki heldur afhverju þeim sé ekki leyft að vera á þeirra griðarstað til að taka prófin. Það hafi sýnt sig að nemendum líði betur að hafa val um að taka próf í því umhverfi sem þeim líður best í.

Nemendurnir hvetja rektor og stjórnendur til að endurskoða ákvörðun sína um staðpróf um jólin.