Vonskuveður um land allt á morgun

Mjög vont veður verður víða um land á í dag. Veðurstofan sendi í gær út sérstaka viðvörun þar em segir: \"Búist er við suðaustanstormi og rigningu eða slyddu í nótt, en suðvestanvonskuveðri með éljagangi á öllu landinu á morgun.

Í kvöld fer svo að rofa til og draga úr vindi en hann mun aftur rjúka upp.

Það er því von á sviptingum og eru vegfarendur og landsmenn brýndir til að taka mið af veðurspá og fréttum af færð á vegum.