Ritstjóri Túrista, turisti.is, var í viðtali í morgun þar sem hann rifjaði upp hversu langt frá raunveruleikanum mestu metnar ráðgjafar þjóðarinnar voru þegar þeir spáðu til um fjölgun ferðamanna.
„Við áætlum að erlendum gestum fjölgi úr 670 þúsund árið 2012 upp í u.þ.b. 1,2 milljónir árið 2023 miðað við óbreytta stefnu. Ef Ísland nær hins vegar að laða til sín þann markhóp sem líst er í þessari skýrslu og vinnur samkvæmt ráðleggingum okkar þá teljum við að fjöldinn verði um 1,5 milljónir eftir tíu ár.”
Þetta er oðrétt úr skýrslu og rannsóknarvinnu Boston Consulting Group sem kom út í september 2013. Ráðherrarnir Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Ragnheiður Elín Árnadóttir lögðu sig að mörgkum, þau skrifuðu formála skýrslunnar. Oft hefur verið vitnað til hennar sem heilags plaggs. Raunin er allt, allt önnur.
„Það er greinilegt að frá árinu 2012 hafa tölurnar hækkað umtalsvert. Það kemur ekki á óvart þegar litið er til aukningar í flugi, m.a. vegna lækkunar olíuverðs”, segir Alastair Flanagan, framkvæmdastjóri Boston Consulting Group og einn af höfundum skýrslunnar, aðspurður um þessar miklu skekkjur, í viðtali við Túrista í mars á þessu ári. „Í svari sínu til Túrista bendir Flanagen einnig á að framboð og verð á flugi, samsetning flugleiða og efnahagsástand í heiminum hafi áhrif á ferðamannafjöldann. Hann segir jafnframt að hann álíti að tölurnar í skýrslunni hafi verið settar fram sem möguleg staða frekar en spá. Þess ber því að geta að í skýrslunni, sem er á ensku, eru tölurnar yfir fjölda ferðamanna kynntar með orðunum „estimate” og „projection” sem þýðir áætlun eða spá skv. íslenskri orðabók.“
Það voru Isavia, Bláa Lónið, Icelandair Group og Höldur höfðu frumkvæði að vinnu Boston Consulting Group. Hafi þessi fyrirtæki, ráðherrarnir sem að komu og aðrir byggt sín áform og aðgerðir á þessari arfavitlausu skýrslu er ekki nema von að vandi hafi skapast hér og þar um landið.
Boston Consulting Group spáði að árið 2023 yrðu erlendir ferðamenn orðnir tólf hundruð þúsund. Árið 2016, það er í ár, verða þeir sautján hundruð þúsund. Varla er hægt að spá eins vitlaust og hinir hálaunuðu ráðgjafar gerðu.