Vönduð heimildarmynd um titanic kl.20

Þann 10.apríl árið 1912, lagði skemmtiferðaskipið Titanic af stað í jómfrúarferð sína. Leiðin lá frá Southampton í Englandi til New York. Svo stórt og glæsilegt skip hafði enginn séð áður enda var það sagt ósökkvanlegt með meiru. Fjórum dögum síðar, þann 14.apríl, gerðist þó það sem talið var óhugsandi. Skipið sigldi á ísjaka og að morgni næsta dags, var það sokkið. Um 1500 manns létu lífið og hefur saga Titanic oft verið sögð í bókum og kvikmyndum.

Árið 1985 fannst flak skipsins og á aldarafmæli þess, frumsýndi National Geographic vandaða heimildarmynd um Titanic. Þar má sjá skipið og ýmsa innanstokksmuni þess á ótrúlegum myndum. Heimildarmynd National Geographic um Titanic verður sýnd á Hringbraut í kvöld klukkan 20.00.

\"\"