Vonbrigði í fjárlagafrumvarpi

„Starfsstjórn hægri flokkanna er við völd og hvorki stjórnarmeirihluti né minni hluti á þinginu. Í þessu pólitíska andrúmi glímir Alþingi við fjárlagafrumvarp Bjarna Benediktssonar og ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar.“

Þetta er bein tilvitnun í ræðu sem Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þingmaður VG, hélt í Alþingi fyrir helgi. Hún var meðal gesta í laugardagsþætti Þjóðbrautar.

„Fjárlög eru pólitískasta plagg hverrar ríkisstjórnar. Það er ekki hægt að leggja fram fjárlagafrumvarp sem ekki er pólitískt. Viðð skulum átta okkur á því, þó starfstjórn sitji, þá er þetta fjárlagafrumvarp, sem var lagt fram af hálfu Bjarna Benediktssonar og Sigurðar Inga, þá er það pólitískt plagg þeirrar ríkisstjórnar. Það má finna ýmislegt í því sem aðrir flokkar á þingi geta ekki fellt sig við,“ sagði Rósa Björk í gær, en hún var þá önnum kafin í vinnu í fjárlaganefnd Alþingis.

„Í frumvarpinu má finna afar mörg vonbrigði,“ sagði Rósa Björk í þingræðunni. „Þó ég tali bara út frá mínum áhyggjum og míns flokks, eru vonbrigði að ekki sé gefið meira í heilbrigðis- og menntamálin. Það þarf ekki annað en að lesa fréttir þá deila forstöðumenn Landspítalans, að minnsta kosti, þeirri skoðun með okkur. Það er ýmis dæmi í frumvarpinu sem ég hefði viljað sjá á anna veg. Það eru heldur ekkert launungarmál, og hefur komið fram í málflutningi okkar í Vinstri grænum, undanfarnar vikur að fráfarandi ríkisstjórn gaf frá sér tekjur og þar afleiðandi lítur þetta ekki eins vel út og við var að búast og vonir stóðu til.“

En fjárlagafrumvarpið er til meðferðar í þinginu, og trúlega verðar gerðar breytingar á því.

„Það er vonandi. Það eru alla jafna gerðar breytingar á frumvarpinu í meðferð þingsins.“

-sme