Vonbrigði birgittu

Birgitta Jónsdóttir er gestur í Þjóðbraut í kvöld. Þar mun koma fram að Birgitta er vonsvikin með hvern enda stjórnarmyndurtilraunir hennar fengu. Hún var nokkuð sannfærð um að flokkarnir fimm, sem tóku þátt í viðræðunum, myndu ná saman um myndun ríkisstjórnar.

Birgitta er einnig ósátt með hvernig einstaka þingmenn túlka ástæður þess að lengra varð ekki farið. Hún segir gögn um það samkomulag varð um, séu til, og að hún trúi varla að það þurfi að opinbera þau til að leiðrétta margt af því sem sagt var.

Ósætti Birtgittu beinist helst að Vinstri grænum og Katrínu Jakobsdóttur formanni flokksins.

Áhugavert viðtal við Birgittu í Þjóðbraut í kvöld, en þátturinn hefst klukkan 21:00.