Vonar að miðflokksmenn séu ekki fordæmisgjafar

„Ég vona að þeir aðilar sem við þurfum að kalla fyrir nefnd­ina í hverri viku, mörgum sinnum á hverju þingi, ég vona að þeir horfi ekki á þessa tvo aðila, Sig­mund Davíð Gunn­laugs­son og Gunnar Braga Sveins­son, og líti til þeirra sem for­dæm­is­gjafa,“ segir Helga Vala Helgadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Kjarninn greinir frá.

„Ég las upp þeirra yfir­lýs­ingar eins og óskað var eft­ir. Þær voru nokkuð afger­andi. Þeim finnst sem þing­menn að þeim beri engin skylda til að mæta fyrir fasta­nefndir þings­ins. Ég held að þetta sé mál sem for­sætis­nefnd Alþingis þurfi að skoða. Það er auð­vitað þannig í lögum um þing­sköp Alþingis að það er hvergi minnst á skyldu for­stjóra rík­is­stofn­ana, ráð­herra eða þing­manna til að mæta. Það er ekki eins og er í lögum um með­ferð saka­mála þar sem þú getur látið hand­taka ein­stak­ling og færa hann í skýrslu­töku. Í gjald­þrota­lög­unum er það hægt lík­a,“ segir Helga Vala aðspurð hvort að það komi til greina að boða Sigmund Davíð og Gunnar Braga, þingmenn Miðflokksins, aftur til fundar við nefndina.

Helga Vala var gestur Þórðar Snæs Júlíussonar, ritstjóra Kjarnans, í frétta- og umræðuþættinum 21 á Hringbraut á miðvikudagskvöld. Viðtalið í heild sinni er að finna hér:

Neituðu að mæta á fundinn

Eins og kunnugt er neituðu þeir Sigmundur Davíð og Gunnar Bragi að mæta á fund stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis á miðvikudagsmorgun, þegar nefndin tók fyrir hluta Klaustursupptakanna sem virtust vera pólitísk hrossakaup vegna skipan í sendiherrastöður. Þetta var í annað sinn sem þeir neituðu að mæta fyrir nefndina en þeir sendu frá sér yfirlýsingar þar sem þeir gagnrýndu fundinn og Helgu Völu sérstaklega. Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra og Guðlaugur Þór Þórðarson mættu á fundinn og sátu fyrir svörum.

Á upptökunum má m.a. heyra Gunnar Braga tala um hvernig hann telji sig eiga inni hjá Sjálfstæðisflokknum eftir að hafa skipað Geir H. Haarde sem sendiherra og vænti þess að verða skipaður sendiherra sjálfur þegar fram líði stundir. Sigmundur Davíð segir einnig á upptökunum að Bjarni Benediktsson hafi sagt Guðlaugi Þór að „leysa málið.“