„Þú ert í röð við kassa. Allt í einu heyrirðu, „opið á kassa fjögur!“. Hvað gerist?“
Þannig hefst pistill eftir Birgi Örn Guðjónsson, betur þekktur sem Biggi lögga. Hann tjáir sig á Facebook þar sem hann fjallar um ósvífni sumra Íslendinga í verslunum. Biggi lögga heldur áfram:
„Í siðmenntuðu samfélagi fengi sá sem er búinn að bíða lengst að fara fyrstur. Ekki satt? Sú er samt sjaldnast raunin. Venjan er að gaurinn sem var að koma að röðinni er í besta færinu til hreppa ráspólinn. Er það sanngjarnt?“
Biggi lögga heldur áfram:
„Þessi „heppni“ verslari byrjar svo að tína upp úr körfunni salla rólegur með tilgerðarlegt svipleysi sem á að segja að hann hafi hreinlega bara ekki tekið eftir þessum átta samverslurum hans sem biðu í röð eða þeim fjórtán augum sem grafa sig nú í hnakkann á honum í þeirri von að hann finni til í sinni greinilega kolsvörtu sál.“
Þetta kallar Biggi lögga mannasiðferðislegu spurningu dagsins. Þá spyr hann hvað siðmenntað verslunarsamfélag geri í þessari stöðu.
„Á að benda raðaböðlinum á ósvífnina eða er þetta enn eitt samþykkt íslenskt raðafrumskógarlögmálið? Hvað munt þú gera næst í þessari stöðu?“ spyr Biggi lögga og bætir við:
„Nei, ég veit, lífið er ekki einfalt. Sérstaklega ekki svona rétt fyrir jól. Viltu miðann?“
Þá segir Biggi lögga að lokum:
„ps. Já ég veit að átta manns bera oftast sextán augu. Takk fyrir að vera með á nótunum. Þeim sem var fremstur í röðinni sem beið er bara drullu sama. Eðlilega.“