Von á jarðskjálftum af mannavöldum

Mikill vandi hefur lengi ríkt við Hellisheiðarvirkjun vegna brennisteinsvetnis og fleiri atriða.

Rétt í þessu sendu Almannavarnir frá sér tilkynningu þar sem segir að Orkuveitan, lögreglustjórinn á Suðurlandi og almannavarnadeild ríkislögreglustjóra veki athygli á að vegna breytinga við niðurdælingu hjá Hellisheiðarvirkjun telji vísindamenn auknar líkur á jarðskjálftum frá og með deginum í dag og fram á mánudag. Jarðskjálftarnir geti vel náð þeirri stærð að þeir finnist í byggð.