Margir notendur samfélagsmiðla sem deildu í gær myndum af mönnum sem grunaðir eru um nauðgun gagnvart tveimur konum gerðu það án þess að átta sig á að með því kynnu þeir að hafa framið lögbrot.
Hringbraut hefur rætt við notendur á facebook sem staðfesta þetta.
Lögmenn stigu fram í gær og bentu á þetta og virðist sem mörgum hafi komið á óvart að það kynni að kalla á eftirmál að leyfa myndum af mönnunum að standa á veggjum facebook-notenda.
Á knuz.is sem berst fyrir auknu jafnrétti kemur fram þar sem frétt um að \"...farið verði í hart gegn þeim sem nafngreint hafa mennina og birt myndir af þeim á samfélagsmiðlum“ er deilt að á tæpum sólarhring hafi 3.171 Íslendingur deilt myndum af mönnunum.
Ef Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður og verjandi grunuðu mannanna tveggja hyggst höfða mál gegn þeim öllum – ef niðurstaðan verður að mennirnir fari ekki fyrir dóm og að nauðgunarmálin verði látin niður falla – má reikna með að nóg verði að gera hjá lögmanninum, að höfða um 3.200 ærumeiðingarmál.
Fram kemur í ummælum við færslu knuz.is á facebook að lögmaðurinn sé að reyna að stela umræðunni eða hræða fólk til þagnar.