Góðar líkur eru á að hitamet gæti fallið á morgun. Trausti Jónsson veðurfræðingur gerir mjög hlýtt loft yfir landinu að umfjöllunarefni í nýjum bloggpistli. Með heppni fari hitinn í 20 stig.
„Landsdægurmet 16. október er 18,2 stig - og orðið býsna gamalt, frá Teigarhorni 1934. Daginn eftir, þann 17. er ríkjandi dægurmet ekki nema 17,0 stig, sett á Hólum í Hornafirði 1978. Með heppni gætu þessi met fallið - en er auðvitað ekki víst - og við verðum svosem ekki fyrir neinum sérstökum vonbrigðum þó það gerist ekki,“ segir Trausti og virðist einkum horfa til Norður- og Austurlands.
„Seint á laugardag fer veður kólnandi - fer alla vega langt úr seilingu við landsdægurhitamet. Svo eru sumar spár að gera ráð fyrir meiri kólnun fyrir miðja næstu viku - en jafnframt er því spáð að landið verði í lægðabraut,“ skrifar veðurfræðingurinn góðkunni.