Heiðrún Lind Marteinsdóttir framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem hefur starfað innan Sjálfstæðisflokksins sagði í Þjóbraut í morgun að hún teldi kjósendur hafa valið flokka sem hefðu skýran prófíl og sterka leiðtoga. Hún á við gengi Sjálfstæðisflokksins sem hlaut 29 prósenta atkvæða og 21 þingsæti og er það með langstærstur á þingi, bætti við sig tveimur þingsætum. Hinn flokkurinn sé VG sem hlaut næstbestu kosninguna með 15.9 prósenta atkvæða. Með því bætti flokkurinn við sig þremur þingmönnum og hefur 10 þingsæti alls.
Heiðrún taldi að allir aðrir flokkar hafi verið með óljósari ásýnd og stefnu. Um stjórnarmyndunarviðræður segist hún persónulega vera mjög skotin í Pírötum og vildi sjá þá í samræðum við Sjálfstæðisflokkinn, þótt hún vissi að íhaldsami armum Sjálfstæðisflokksins myndi ekki vilja sjá slíkt nema síður sé.
Heiðrún Lind ræddi þetta í morgunsjónvarpi Þingbrautar með Guðríði Arnardóttur, formanni félags framhaldsskólakennara og fyrrverandi oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi og Viktori Orra Valgarðssyni, stjórnmálafræðingi og nú varaþingmanni Pírata.
Útilokað að vinna með Sjálfstæðisflokki
Viktor Orri taldi útilokað og talaði fyrir hönd annarra Pírata þegar hann sagði hugmynd Heiðrúnar ekki verða að veruleika. Til þess væri of mikið í milli, svo sem tengsl formanna flokksins við Panamaskjölin og stjórnarskrármálið. Gengi Pírata væri ásættanlegt í þeirra herbúðum en viðurkenndi að viss vonbrigði hefði verið með að fá þau 14,5 prósent enda mælst undanfarið með yfir 20 prósent. Vandinn hefði verið ljós snemma og það væri kjörsókn þeirra fylgismanna. Flokkurinn vann góðan sigur ef tekið er tillit til þess að hann fær tíu þingmenn í stað þriggja.