Sjúkrahúsið Vogur hættir að taka við ungmennum undir 18 ára.
Framkvæmdastjórn SÁÁ og meðferðarsvið sjúkrahússins tóku ákvörðun um það. Verður ungmennameðferð á Vogi nú miðuð við 18 ára aldur.
Í tilkynningu frá SÁÁ þar sem fram kemur að augljós krafa um að ólögráða einstaklingar geti ekki verið í sama rými og fullorðnir í meðferð sé meira en Vogur geti orðið við að svo stöddu. Því sé ekki stætt á að halda áfram meðferð þeirra þar.
Lögregla rannsakar kynferðisbrot gagnvart 16 ára stúlku inni á Vogi og hefur Vogur sætt gagnrýni fyrir, bæði nú og fyrr að unglingar séu á sama sjúkrahúsi og fullorðnir.
„Það að eitt barn hafi hugsanlega orðið fyrir skaða innan veggja spítalans er einu barni of mikið. SÁÁ setur öryggi sjúklinga sinna í fyrsta sæti og vill með þessum aðgerðum axla ábyrgð“, segir m.a. í tilkynningu SÁÁ og þar segir ennfremur í lokin:
„Óskað hefur verið eftir leiðbeiningum heilbrigðisráðherra um hvernig þetta skref verður tekið þar sem brýnt er að ólögráða með vanda af fíkn fái áfram viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Samráðsfundur er fyrirhugaður til að ákveða framtíðarfyrirkomulag og næstu skref\".