Vofa verkfalla fer aftur á stjá

Allt útlit er fyrir að stórir hópar ríkisstarfsmanna innan SFR og Sjúkraliðafélags Íslands boði verkfallsaðgerðir í dag, en þær munu hafa mikil og jafnvel lamandi áhrif á Landspítalanum og mörgum öðrum þjónustustofnunum ríkisins.

Að sögn Þórarins Eyfjörð, framkvæmdastjóra SFR er afskaplega mikill hugur í hans fólki sem kom augljóslega fram á baráttufundi félagsins ásamt sjúkraliðum og lögreglumönnum í Háskólabíói síðdegis í gær, en þar var troðið út úr dyrum.

Hóparnir stefna að tímabundnum og ótímabundnum verkfallsaðgerðum á næstu vikum, fari svo að atkvæðagreiðslan um verkfallsboðunina í dag verði samþykkt, en sem fyrr verða veittar undanþágur fyri sjúkraliða á Landspítalanum, minnst ein staða á hverri deild og líknardeildir verða fullmannaðar.

Aðgerðir SFR munu hafa mikil áhrif á ríkisstofnunum, svo sem hjá Tollstjóra og Sýslumanni og gæti afgreiðsla skjala tafist mjög af þeim sökum.

Lögreglumenn hafa ekki verkfallsrétt, en standa heilshugar með samflotshópnum, eins og vel kom fram í Háskólabíói í gærkvöld þar sem fjöldi lögregluþjóna mætti.

Enginn fundur hefur verið boðaður í deilunni, en hóparnir sem hér um ræðir ætla ekki að semja um minna en hjúkrunarfræðingar fengu út úr gerðardómi, eða nálega 30% launahækkun.