Vandræðaleg uppákoma á þingi

Vandræðaleg uppákoma varð á Alþingi rétt í þessu þegar þingkona Framsóknarflokksins, Elsa Lára  Arnardóttir, var að mæla fyrir frumvarpi um húsnæðissamvinnufélög. Brá þá svo við að stigvaxandi bergmál tók yfir rödd hennar. Hún hélt áfram að tala og var í miðri ræðu að geta athugasemda frá Búseta þegar orð hennar lengdust svo mjög að minnti á dramatískustu setningar Svarthöfða.  Ekki er vitað hvað gerðist.

Um síðir hætti þingkonan að tala, flissaði og sagði að þetta væri mjög óþægilegt.

Settur þingforseti, Björt Ólafsdótir, hafði engin ráð og var því gert fundarhlé vegna bergmálsmælinga í þingsal.

Fundi hefur nú verið fram haldið og er bergmálið íur sögunni.