Jón von Tetzchner, stofnandi Vivaldi, er í viðtali hjá Jóni G. í kvöld og þar kemur fram að notendur Vivaldi eru komnir yfir 1 milljón. Jón er íslenskur í aðra ættina og ólst upp á Seltjarnarnesi og lauk stúdentsprófi frá MR. Eftir það fluttist hann til Noregs og stofnaði Operu-vafrann sem sló hressilega í gegn. Jón er núna alþjóðlegur fjárfestir sem m.a. hefur fjárfest umtalsvert á Íslandi, bæði í fasteignum og sprotafyrirtækjum. Hann stofnaði Vivaldi fyrir nokkrum árum og vinna um 10 manns við hann hér á landi en um 20 í Noregi auk nokkurra starfsmanna annars staðar í heiminum. Vivaldi er þekktur sem Norsk-íslenski vafrinn og hefur Jón meðal annars notað hið stórbrotna íslenska landslag til að kynna vafrann erlendis – og tengt hann þannig við Ísland og vinsældir landsins erlendis. Jón segir sókn vafrans vera í samræmi við áætlanir sínar.
Vivaldi með yfir 1 milljón notenda
Fleiri fréttir
Nýjast