Karl Ágúst Úlfsson lét vaða á súðum í skemmtiþætti sínum, Helginni á Hringbraut á laugardagskvöld og lét alla hafa það sem þurfa að hafa það í hressilegum inngangsorðum sínum.
Og fyrst þetta: \"Vigdís Hauksdóttir var í forsíðuviðtali í Fréttablaðinu og upplýsti að hér á landi starfaði hulduher við að halda Framsóknarflokknum niðri. Og þetta er meira að segja grímulaus hulduher eftir því sem Vigdís segir. Ef þetta er hulduher, af hverju er hann þá grímulaus. Ég segi alveg eins og er að ef ég væri í hulduher sem ætti að halda Framsóknarflokknum niðri, þá myndi ég heimta grímu. Ég myndi heimta gasgrímu,\" sagði leikstjórinn góðkunni og var hreint ekki hættur.
\"Og Sjálfstæðisflokkurinn hélt landsfund um síðustu helgi,\" hélt kappinn áfram \"þar sem hann skerpti enn og aftur á helstu baráttumálum sínum, svo sem að áfengi verði selt í öðrum búðum en vínbúðum. Samkvæmt ungliðum flokksins verður einstaklingsfrelsi ekki marktækt á Íslandi fyrr en hægt verður að kaupa brennivín í skóbúðum, bókabúðum og barnafataverslunum. Annað er bara forræðishyggja.\"
Hann hafði sagt skilið við flokkinn; \"Sjálfstæðisflokkurinn vill líka athuga möguleika á að taka upp annan gjaldmiðil en krónuna. Er ekki til fullt af ónýtum gjaldmiðli víðs vegar um Evrópu sem búið er að leggja af og við getum þá fengið að taka upp. Til dæmis ítalska líran, franski frankinn, gríska drakkman - nú eða þýska markið. Þá fyrst yrði kannski tekið mark á okkur, íslenskir bankastarfsmenn yrðu markverðir, við myndum skora endalaus mörk á alþjóðavettvangi og gætum enn og aftur gengið út yfir öll mörk.\"
Þessu næst að nýjum Íslandsvinum: \"David Cameron forsætisráðherra Breta kom hingað til lands í opinbera heimsókn og það var mynd af honum í þessu blaði,\" benti Karl á að veifaði Fréttablaðinu: \"Og með honum á myndinni er Sigmundur Davíð,\" en þetta er brandari fyrir lengra komna.
En yfir í stjórnarandsstöðuna: \"Steingrímur J. Sigfússon vill ekki kannast við að neitt sé óeðlilegt við það hvernig staðið var að ákvörðunum og fjármögnun á Vaðlaheiðargöngunum og finnst fráleitt að láta norðlendinga gjalda þess að hann skuli vera þingmaður þeirra. Steingrímur bendir líka á þau gífurlegu verðmæti sem felist í vatninu sem nú streymi út úr göngunum, bæði heitu og köldu, og fari svo að aldrei verði hægt að aka um þessi göng má þó að minnsta kosti markaðssetja þau sem stærstu gufubaðsstofu í heimi.\"
Svo þetta smáræði: \"Jólin byrjuðu í IKEA á því að IKEA geitin brann til kaldra kola. Margir komast ekki í hátíðaskap fyrr en þeir hafa séð IKEA geitina brenna,\" og við það brast hann í söng undir fögrum nótnaleik nafna síns Olgeirssonar:
SÓL SLÆR SILFRI Á VOGA
SJÁIÐ GEITINA LOGA
Og hann var ekki hættur: \"Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra kynnti nýjar og byltingarkenndar aðferðir í prósentureikningi, þar sem hún bendir á að hægt sé að spara stóran hluta byggingakostnaðar með því að hver aðili sem komi að húsbyggingu skeri niður kostnað hjá sér um eitt prósent. Það er merkilegt að engum skuli hafa dottið þetta í hug fyrr. Þetta minnir á söguna af manninum sem byrjaði á því að éta endana af brauðinu sínu og át svo endalaust brauð.\"
Þetta líka: \"Og á sama tíma er Eygló að kynna hugmyndir um styttingu vinnuvikunnar. Samkvæmt sömu reikniformúlu þarf aðeins að stytta vinnu hvers starfsmanns um eina mínútu og þá syttist vinnuvikan um klukkutíma á sextíu manna vinnustað. Það þýðir að á stórum vinnustöðum, til dæmis 500 manna, verður hægt að skera niður um heilan dag í hverri viku. Þetta er brilljant.\"
Og enn að vininum: \"Og David Cameron kom hingað til lands og það birtist mynd af honum í þessu blaði. Og með honum á myndinni — jú, mér sýnist þetta vera Sigmundur Davíð. Cameron hélt að hann væri kominn í opinbera heimsókn til Íslands, en í raun og veru var hann mættur á námskeið hjá Sigmundi Davíð í því hvernig eigi að pluma sig utan Evrópusambandsins. Sigmundur mun einnig hafa boðið nafna sínum að taka upp íslensku krónuna sem gjaldmiðil og boðið fram aðstoð við að koma á verðtryggingu í Bretlandi.\"
Loksins auðvitað stærsta fréttin - og kannski sú þyngsta: \"Þetta var vikan þegar við fréttum að að minnsta kosti ein vogin í Bónus væri snarvitlaust stillt. Á sama tíma er verið að upplýsa skelfilega meðferð á svínum í svínabúum landsins. Er þetta tilviljun? Ef Bónusmerkið er gaumgæfilega skoðað má sjá að grísinn er með glóðarauga. Tilviljun? Eða ætlaði hann að gera vigtunarmál fyrirtækisins að umtalsefni með þessum afleiðingum? Er ekki tími til kominn að við rísum öll upp undir kjörorðinu: Frelsum Bónusgrísinn,\" öskraði leikstjórinn - og bauð svo gesti þáttarins velkomna, en þeir voru að þessu sinni söngkonan Hera Björk og leikarinn Benni Erlings, en þáttinn allan má sjá hér á hringbraut.is og einnig klippur úr þættinum.