Vitrun kim jong-un

Erlendar fréttastofu hafa þau ummæli eftir ríkisoddvita Norður-Kóreu að eldflaugar herafla landsins nái nú til hugsanlegra skotmarka víða um heim. Ekki aðeins hugsanlegra skotmarka í Bandaríkjunum.

Kim Jong-Un er ríkisoddviti Norður-Kóreu og eiga ummæli hans greiðan aðgang að hlustendum um allan heim einkum og helst vegna þess hve groddaleg þau eru.

Vitrun hans er sú að Norður-Kórea verði kjarnorkuveldi til jafns á við hin sjö kjarnorkuveldin sem gangast við því að eiga kjarnorkuvopn og fá það viðurkennt af öllum þjóðum heims að Norður-Kórea sé stórveldi í þessum félagsskap.

Það er nokkuð á reiki hvað það er í raun sem Norður-Kórea eru að skjóta á loft. Sérfræðingar sem tala opinberlega um þessi eldflaugaskot minna á að í seinni tíð sé nokkuð auðvelt að smíða traustan hólk og setja í hann goshreyfil og fylla hólkinn með brennsluefni sem er annað hvort í föstu formi eða fljótandi.

Minna sérfræðingarnir á að fjöldi einkafyrirtæki selji nú eldflaugaskot þar sem fluttur er farmur til alþjóða geimstöðvarinnar eða þá að gervihnöttum er komið á loft.

Tæknin er til staðar og á Norður-Kórea ekki neinum erfiðleikum með að verða sér úti um efni til eldflaugasmíða og goshreyfla til að knýja flaugarnar. Hundruður óhappa á undanförnum áratugum í Norður-Kóreu eru vísbendingar um óvönduð vinnubrögð og frekar frumstæða eldflaugatækni.

Norður-Kórea - segja þessir sérfæðingar - geta fyllt hólk með drifefni og sett goshreyfil á hólkinn og skotið hólknum heimsálfa á milli.

Norður-Kóre hefur hins vegar ekki kunnáttu til að hanna og smíða fjarmælikerfi sem tryggja að eldflaugarnar hitti skotmörk af mikilli nákvæmni og hafa ekki getu til að gera kjarnorkusprengjuodda það smáa að þeim verði haganlega komið fyrir í elflaugum.

Sérfæðingar segja að hinn raupsami ríkisoddviti Norður-Kóreu Kim Jong-Un glími eins og aðrir við þyngdaraflið en það er eitt þeirra náttúrafla sem engin jarðnesk vera hefur enn getað umflúið að undanteknum nokkrum geimförum.

Og erfitt er að gera sér ljóst hvernig lífinu myndi háttað ef Norður-Kórea þyrfti ekki að taka tillit til þess.  

Kjarnorkuvopnaáætlun Norður-Kóreu - segja sérfæðingar - er ómerkileg sýning eða sjónhverfing og elflaugaskotin eru því líkast til minnstu viðburðir veraldar.   

 

Nánar www.bbc.com www.afp.com

frettastjó[email protected]