Vitleysingar ráku gömlu bankana

Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Vinstri grænna vandaði eigendum gömlu hrunbankanna ekki kveðjurnar á Morgunvaktinni á Rás 2 í morgun og kallaði þá vitleysinga.

Hann varaði við því að þeir viðskiptabankar sem nú væru nær einvörðungu í eigu ríkisins eða í þann mund að komast í eigu þess kæmust í hendur álíka manna og reyndin varð í upphafi aldarinnar. Sagan sýndi að þeir hefði verið reknir af vitleysingum sem ekkert hefðu kunnað til verka í bankaviðskiptum. Ef á annað borð ætti að selja hluti ríkisins í þessum bönkum yrði eignarhaldið að vera dreift og kaupendur valdir af kostgæfni í opnu ferli, en eins kæmi vissulega til greina að ríkið héldi hlutunum fyrir sig; það hefði ekki verið ríkið á sínum tíma sem komið hefði gömlu bönkunum í þrot, heldur einkaaðilar, en fram að því hefðu þessir bankar verið í ágætum rekstri ríkisins.

Í þættinum ræddi hann stöðugleikagjaldið sem kröfuhafar gömlu bankanna eiga að greiða svo þeir komist með hluti sína úr landi. Hann kvaðst óttast að þær leiðir sem nú væru viðraðir í þeim efnum, svo sem að Íslandsbankinn færi upp í gjaldið, dygðu ekki í stóra menginu þegar gjaldeyrisflæðið yrði gert upp. Líklega kæmi þar langtum minna til ríkisins en sem næmi stöpugleikaskatti.