Vitlaust talið: áfall fyrir ragnar þór

Vegna at­huga­semd­ar sem kom fram til kjör­stjórn­ar VR í gær varðandi kynjaflétt­un vara­manna hafa orðið breyt­ing­ar á áður til­kynnt­um úr­slit­um til stjórn­ar VR. Sig­mund­ur Hall­dórs­son, sem lagði fram at­huga­semd­ina til kjör­stjórna, verður varamaður í stjórn VR í stað Odd­nýj­ar Mar­grét­ar Stef­áns­dótt­ur.

Um þetta er fjallað í frétt á vefnum mbl.is í dag og þar er sagt að „fljót­færn­ismis­tök“ hafi valdið því að ekki var kynjafléttað í sæti vara­manna þegar úr­slit­in voru tek­in sam­an í gær, en það hef­ur nú verið leiðrétt, að sögn Magnús­ar M. Norðdahl, lög­fræðings Alþýðusam­bands Íslands.

Þetta verður vænt­an­lega til­kynnt á vef VR á morg­un, en þar inni eru enn röng kosn­inga­úr­slit.

20.4. gr. laga VR kveður á um að  að sá fram­bjóðandi sem flest at­kvæði fær eigi að skipa 1. sæti í stjórn.

„Næsta sæti skip­ar sá sem flest at­kvæði fékk en er af hinu kyn­inu o.s.frv. Þeir 7 sem flest at­kvæði fá sam­kvæmt fram­an­sögðu telj­ast rétt kjörn­ir aðal­menn í stjórn VR til 2ja ára. Næstu 3 telj­ast rétt kjörn­ir vara­menn í stjórn VR til 1 árs,“ seg­ir í ákvæðinu.

Í tölvu­pósti sem send­ur var kjör­stjórn og fram­bjóðend­um í stjórn­ar­kjöri VR í há­deg­inu í dag kom fram að ákvæðið væri ekki full­kom­lega skýrt varðandi flétt­un vara­manna, en að við skoðun á fund­ar­gerðum und­an­far­inna ára hefði komið í ljós að flétt­u­r­egl­an hefði verið tal­in gilda um vara­menn og þeim raðað inn með þeim hætti að fyrsti varamaður hefði verið af gagn­stæðu kyni við síðasta aðal­mann inn – og síðan koll af kolli.

„At­huga­semd Sig­mund­ar er því á rök­um reist,“ seg­ir í tölvu­póst­in­um til kjör­stjórn­ar. Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is voru ekki all­ir sátt­ir með þessa niður­stöðu á fundi kjör­stjórn­ar.

Bjarni Þór Sig­urðsson, stjórn­ar­maður Í VR kall­ar þetta „áfall fyr­ir Ragn­ar Þór,“ en Odd­ný Mar­grét er yf­ir­lýst­ur stuðnings­maður for­manns VR.

Rétt kjörn­ir aðal­menn til tveggja ára:

Sig­ríður Lovísa Jóns­dótt­ir                       
Bjarni Þór Sig­urðsson                                 
Dóra Magnús­dótt­ir                                     
Arnþór Sig­urðsson                                       
Guðrún Björk Hall­björns­dótt­ir                 
Friðrik Boði Ólafs­son                             
Ingi­björg Ósk Birg­is­dótt­ir

Rétt kjörn­ir vara­menn til eins árs:

Sig­urður Sig­fús­son                                      
Agnes Erna Esther­ar­dótt­ir                       
Sig­mund­ur Hall­dórs­son