Vitinn við sæbraut vígður: fór 75 milljónum fram úr áætlun - hönnun kostaði 11 milljónir

Nýi guli innsiglingarvitinn við Sæbrautina var virkjaður í dag og tengdist þá öðrum vitum í Reykjavík. Borgarstjóri, borgarfulltrúar og stjórn Faxaflóahafna hittust við vitann á hádegi við vígslu vitans. 

Áætlaður heildarkostnaður við vitann nemur um 175 milljónum króna. Í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir að kostnaður borgarinnar við vitann yrði 75 milljónir en endaði í rúmum 150 milljónum króna. Faxaflóahafnir greiða 25 milljónir króna af heildarkostnaði við vitann vegna landfyllingar og grjótvarna. Hönnun vitans og útsýnispallsins kostaði 11 milljónir.

Vitinn leysir af innsiglingarvitann sem verið hefur í turni Sjómannaskólans frá árinu 1945. Hann þjónaði hlutverki sínu þar til háhýsin við Borgartún og Hátún fóru að skyggja á geisla vitans. Innsiglingarvitarnir frá 1913-1917 í Gömlu höfninni voru notaðir sem fyrirmynd við hönnun Yrki Arkitekta á vitanum við Sæbraut.