Viti menn: siggi bogi sigraði

Það var ekkert gefið eftir í gærkvöld þegar Baggalúturinn Karl Sigurðsson og blaðamaðurinn Sigurður Bogi Sævarsson leiddu saman hesta sína í úrslitum spurningaþáttarins Viti menn á Hringbraut.

Umsjármaðurinn Karl Th. Birgisson, þaulvanur spurningahöfundur og stjórnandi margra kunnra þátta af þessu tagi, bar upp fyrstu spurninguna klukkan 20:00 í gærkvöld - og fljótlega kom í ljós að yfirvegaður Sigurður Bogi hafði dagsformið fram yfir niðurlútan Baggalútinn Karl Sigurðsson, sem tók þó ósigri sínum eins og nafn hans gefur til kynna, af karlmennsku. Þáttinn má sjá hér á vef stöðvarinnar.

Úrslitaþátturinn var 45 mínútna langur, þriðjungi drýgri en fyrri þættir af þessum vinsæla spurningaleik þar sem leitað er eftir kunnáttu fólks í sögu, landi og tungu - og það var á stundum hrein unun að sjá þessa eiturgreindu kappa írgunda svör sín áður en Karl kvað tímann úti.

16 keppendur hófu leik í haust, en tveir stóðu nú eftir, fyrrnefndir Karl og Sigurður - og það kom eftirminnilega í ljós í kvöld hvor þeirra vaknaði betur í morgun.

Spurningaþátturinn Viti menn, úrslitin sjálf, er endursýndur í dag - og þótt úrslitin liggi fyrir er alltaf gaman að máta sig við spurningar þáttarins.

Von er að framhald verði á næsta haust.