Viti menn: siggi bogi og kalli í úrslit

Komið er að úrslitastundu í spurningakeppni Hringbrautar, Viti menn, sem Karl Th. Birgsson hefur stjórnað mildri hendi frá því í byrjun hausts þegar sextán keppendur settust niður gegnt honum í sjónvarpssal.

Keppnin hefur verið með útsláttarformi, tveir keppt hverju sinni, annar sigrað og hinn fallið úr keppni. Nú standa aðeins tveir keppendur eftir, blaðamaðurinn Sigurður Bogi Sævarsson og baggalúturinn Karl Sigurðsson sem hafði betur gegn kaupmanninum Kormáki Geirharðssyni í síðari undanúrslitaviðureigninni í gærkvöld - og munu þeir leiða keppnina til lykta næsta fimmtudagskvöld í sérstökum úrslitaþætti sem verður lengri en fyrri þættir, 45 mínútur og hefst klukkan 20:00.

Viti menn hefur vakið athygli á skjánum enda spurningahöfundurinn og stjórnandinn alvanur þáttum af þessu tagi, en spurt hefur verið um land, sögu og tungu að hefðbundnum sið sígildra spurningaþátta hér á landi.

Og úrslitin ráðast sumsé eftir viku.