Sigurður bogi lagði ólöfu ýrr

Blaðamaðurinn Sigurður Bogi Sævarsson og ferðamálafrömuðurinn Ólöf Ýrr Atladóttir leiddu saman hesta sína í undanúrslitum spurningaþáttarins Viti menn á Hringbraut í kvöld.

Það fór svo að lokum að Sigurður Bogi hafði betur í viðureigninni og er hann því kominn áfram í keppninni og er kominn alla leið í undanúrslit.

Þættirnir hafa vakið lukku, enda í senn spennandi, fræðandi og þjóðlegir, en spurt er um land, þjóð og tungu allan þáttinn á enda, en form hans er með þeim hætti að annar þátttakandinn vinnur og kemst í næstu umferð, en hinn fellur úr keppni.

Úrslitaþátturinn fer fram í myndveri Hringbrautar í desember.

Viti menn er á dagskrá öll fimmtudagskvöld en þáttinn er einnig hægt á sjá hér á hringbraut.is.