Viti menn: haukur hafði betur

Haukur Már Haraldsson hafði betur gegn Sigríði Hjördísi Jörundsdóttur í spurningaþættinum Viti menn á sjónvarpsstöðinni Hringbraut í gærkvöld og er þar m,eð kominn í æsispennandi undanúrslit þáttarins.

Þessi spurningaþáttur Karls Th. Birgissonar hefur fengið góð viðbrögð í haust og vetur, en þar er spurt um þjóð, sögu og tungu og alveg látið vera að velta sér upp úr dönskum kóngum eða óperum í Scala.

Formið á þáttunum er líka einfalt, en þar mætast tveir í hverjum þætti og annar tapar, en hinn sem vinnur kemst áfram í næstu umferð - og svo fer að af þeim 16 sem upphaflega taka þátt í Viti menn enda tveir í úrslitum - og þar vinnur annar, en hinn tapar.

Úrslitaþátturinn verður sýndur í desember.

Viti menn er á dagskrá Hringbrautar á fimmtudagskvöldum klukkan 20:00.