Vita til hvers er ætlast af þeim

Fyrsti leikur Íslands í lokakeppni Evrópumótsins er annað kvöld. Júlíus Jónasson, margreyndur landsliðsmaður í handbolta, og Arnar Grétarsson, þjálfari Breiðabliks og fyrrum landsliðsmaður í fótbolta, eru gestir í Þjóðbraut í kvöld.

Báðir hafa þeir, Arnar og Júlíus, mikla reynslu af þátttöku í stórleikjum þar sem mikið er undir. Þeir dásama umgjörðina um íslenska liðið og gera sér væntingar um að vel muni ganga.

„Þó svo fari að liðið tapi öllum sínum leikjum, hafa þeir samt sigrað. Árangurinn er það góður,“ segir Júlíus.

Arnar segir margt hafa breyst með komu Lars Lagerbäck. Öll skilaboð séu einföld og ákveðin.