Vita ekki að þeir nauðga

Lilja Kristjánsdóttir og Eva Brá Önnudóttir, sem báðar í þeim hópi sem starfar að Druslugöngunni, er ósammála lögreglustjóranum í Vestmannaeyjum, Páleyju Borgþórsdóttir, um að ekki sé rétt að segja frá fréttum af kynferðisglæpum á Þjóðhátíð.

Sífellt yngri gerendur fremja kynferðisglæpi. Þær segja þá ekki alltaf gera sér grein fyrir að þeir eru að fremja glæpi, eru að nauðga. Ekki síst þess vegna segja þær Eva Brá og Lilja að mikil þörf sé á umræðu um kynferðisglæpi.

Druslugangan verður á laugardaginn. Þetta verður í sjötta sinn sem gengið verður af þessu tilefni.

Báðar segja þær að mikill árangur hafi þegar orðið að göngunni.